Ókei.. orðið aðeins of langt síðan ég bloggaði síðast. Þar sem ég er með gúbbífiskamynni þá er ég líklega búin að gleyma mörgu, en ég reyni mitt besta að segja frá

Á miðvikudaginn fórum við Karen á brimbretti. Þetta var hennar fyrsta skipti, en því miður voru sama og engar öldur svo að það var dálítið glatað.. fengum samt hreyfingu úr að synda

Á fimmtudaginn fórum við á Army beach. Það var geggjað. Ég spilaði strandblak með nokkrum strákum úr skólanum.. Og ég get sagt ykkur það, ég féll alveg fyrir þessu. Þetta er geggjað gaman og frekar erfitt satt best að segja... í hitanum og sandinum. Svo um kvöldið rölti ég niðrá strönd með Lottu, Seletu og Abuelo.. Þau fengu sér drykki á Duke´s.. en barnið ég varð að sætta sig við ananas safa hehe.. ásamt að stelast aðeins í drykkina þeirra

Á föstudaginn fór ég með Claudiu, Simon og Daniel á Ala Moana beach, þar sem ég steinsofnaði. Það var frekar óþægilegt. Þið vitið þessi tilfinning þegar ykkur er kallt á veturna og þið skríðið undir sæng í öllum fötunum og steinsofnið.. svo vaknið þið aftur og þið eruð að dreeeepast úr hita og verðið frekar pirruð og rugluð.. Well that's what it felt like

Svo fórum við að skoða Hilton Hawaiian village.. semsagt nokkurnveginn lítið þorp í miðjunni á mörgum risa hilton hótel byggingum.. það er allt þarna.. veitingahús, verslanir, allskonar dýr s.s. mörgæsir, allskonar fuglar, fiskar og skjaldbökur. Þau sögðu að sumir kæmu þarna og væru bara inní þessu litla þorpi og skoðuðu ekkert annað.. klikkuðu bandaríkjamenn. En já um kvöldið ætluðum við að sjá flugeldasýninguna á ströndinni, en ég var of sein. Ég ætlaði ekki að trúa að þeir kölluðu þetta smádót flugeldasýningu.. þetta var kannski svona 1/12 af venjulegri flugeldasýningu á islandi. Eftir þessi vonbrigði fórum við heim til Claudiu og fengum okkur að borða. Svo skellti ég mér bara heim, átti eftir að pakka fyrir Big Island ferðina

Eldsnemma á laugardaginn lögðum við af stað til Big Island. Þegar þangað var komið byrjuðum við á aðfara í Volcanoes National Park. Sáum Kilauea caldera, Chain of craters road, petroglyps og Thurston Lava tuba (ótrúlega geðveikt). Svo fórum við á Punalu'u Black sand beach. Fyrst fannst mér það ekkert sérstaklega spennandi þar sem þetta leit nokkuð svipað út eins og hin týpíska íslenska "strönd"..þangað til að ég sá skjaldbökun.. og þetta var sko big ass skjaldbaka. Ég var með snorkling dótið mitt með í för, svo að ég greip það og skellti mér útí sjó. Þetta var ótrúlegt! Þið hefðuð átt að sjá þetta.. ég tók myndir en það er bara ekki það sama. Ótrúlegt dýralíf þarna.. marglitir steinar, kórallar, fiskar og álar.. Ég var yfir mig spennt yfir þessu öllu saman.. sá þvílíku fiskatorfurnar þarna saman.. á beit!
Allavega.. næst var förinni heitið að sjá kvikuna. Við vorum mjög heppin.. garðurinn hafði verið lokaður útaf eitruðum gufum í loftinu, en opnaði aftur bara daginn áður eða eitthvað. Þegar við komum var KOLniðamyrkur. Vegna takmarkaðs magn vasaljósa með í för var ég viss um að ég myndi fótbrjóta mig á leiðinni, en heppnin var með mér! Þegar þangað var komið blasti við okkur fallegur bjarmi af kvikunni. Við máttum því miður ekki fara mjög nálægt þannig að myndirnar sem ég tók sýna því miður ekki of mikið.. En þetta var ótrúlegt! Eitt það ótrúlegasta sem ég hef séð, og líklega once in a lifetime hlutur, aðsjá rennandi kviku

Svo var ekki ský á himni þannig að stjörnurnar voru milljónum saman þarna.. Eitthvað indælt fólk leyfði mér að horfa á sjónaukann þeirra, bæði á kvikuna og stjörnurnar.. það var vægast sagt geggjað

Eftir þessa lífsreynslu var förinni heitið á Hostelið okkar, Hilo Bay Hostel. Ágætis hostel þar á ferð. Við skruppum nokkur í garðinn við hliðin á og fengum okkur nokkra bjóra (getur það verið?) og spjölluðum. Skemmtanastjórinn Phillip og klikkaði kennarinn Peter voru með í för og var þetta einstaklega skemmtilegt

Svo fór fólk að týnast upp að sofa.. en ég hafði séð pönnuköku hús á leiðinni sem ég gat ekki gleymt. Svo við ákváðum 5 að fara og fá okkur pönnsur í miðnætursnarl fyrir svefninn..ég meina hversu langt í burtu gat þetta verið? júþað tók okkur 45 mínútur að labba þangað og aðrar slíkar til baka

En þetta voru ótrúlega ljúffengar pönnsur,svo að það var algerlega þess virði

Morguninn eftir fórum við til Waipio Valley lookout, þar sem önnur svört strönd var. Það kynntumst við Seleta fyrrverandi atvinnu hjólreiðamanni (sem var svo kunnuglegur að ég er viss um að ég hef séð hann einhvernstaðar áður..fréttir?). Hann var mjög indæll og var þar með vini sínum og syni sem átti einmitt afmæli þennan dag. Svo að við fengum afmælisköku með fiskinum Nemo á

Þetta er ábyggilega sætasta barn sem ég hef séð! En hann bauðst til að sína mér eyjuna ef ég kæmi aftur, svo að það gæti meira en verið að ég myndi þyggja það

En hjá ströndinni var óóótrúlega fallegur foss sem við skoðuðum líka. Því næst heimsóttum við Hawaiian Tropical Botanical Gardens þar sem við skoðuðum ýmsar fágætar tegundir planta og blóma ásamt Onomea Falls svo fátt sé nefnt. Svo stoppuðum við við Akaka falls sem var gullfallegur foss!
Þá var tíminn víst búinn að við héldum aftur á flugvöllinn þar sem við sáum konur dansa Hula.. frekar fyndið

svo gáfu þær okkur Lei (blómasveiga). En já semsagt geggjuð ferð hér á ferð!
Í gær fór ég svo á brimbretti sem var geggjað.. en ég var eitthvað viðkvæm í augunum (líklega vegna þreytu) svo að ég sá ekki Jack shit. Það var líka síðasti dagurinn hans Johannes svo að við fórum á ekta Hawaiianskan veitingastað þar sem ég borðaði Lau Lau, Poi (sem er viðbjóður)og fleira.
Í dag var frekar skýjað svo að við Lotta fórum í bíó og sáum Street Kings, sem er hin ágætasta mynd. Svo tók hún mig með í dans tíma

ég veit.. ekki alveg í mínum anda. En mér líkaði bara vel. Lærði Salsa og Vals. Skemmti mér ótrúlega vel

Vá laaaangt blogg. Segji þetta gott núna. Gangi ykkur vel að nenna að lesa þetta allt

Hafið það gott þangað til næst:*
Ps. Kristín Rósa mín, takk fyrir skilaboðin frá þér um daginn

Vildi endilega fá netfangið þitt svo ég geti sent þér skilaboð